18ágúst

Kvöldiđ landsbyggđ? og vinna... ha?

Ég er svo að standa mig frábærlega í bloggstarfinu, held að allir séu alveg 100% sammála því að ég er bara að hugsa um að skella hér inn einu léttu og stuttu.. já?

Hef nú eiginlega ekki frá miklu að segja sem maður gerir ekki neitt annað þessa dagana nema vinna, sofa, borða, vinna, vinna já og vinna... Nema tveir frídagar í þessari viku í dag og í fyrradag ég bara vissi ekkert hvernig ég ætti að bregðast við þessari miklu breytingu á mínu hversdagslífi og já var alveg í vandræðum að finna mér eitthvað að gera en núna er fríið mitt bara að verða búið og hversdagslega lífið mitt byrjar aftur með stæl á morgun... vinna, sofa, borða.. úff þetta hljómar svo vel eitthvað í mínu litlu eyrum.. hmmm....
Enn hvað það er samt ljúft að vera með bílpróf.. ég meina að geta keyrt í vinnuna ekki er það nú mikið annað sem ég þarft að keyra þessa dagana en ég held samt að þótt þetta se nú ekki mikið sé ég þrátt fyrir að verða nokkuð dugleg að læra á þessa gírstöng og tilheyrandi kúplingu og það dót.. stolt... og á þessum svaka kagga.. haha.. Hlæjandi
En já þetta er eitthvað svo spennandi allt þá meina ég þetta blogg úff rétt upp hönd sem er ekki að fýla þetta.... já einmitt..

Heyrðu Akureyravaka bara þar næstu helgi úff styttist í að Helga sé að fara að detta fyrir framan alla Akureyringa eða hvað?? á sýningarpalli í tískusýningu?? Þetta er allt að verða svo ósköp spennandi fyrir mér hvort ég eigi eftir að detta eða hvað?? hvað veit maður svo sem.. kannski hendir einhver fullur náungi í mig flösku því að hann er ekki að fýla dressið sem ég er í eða hvað á eftir að gerast á maður kannski eftir að koma áfallalaust út úr þessu öllu saman, ég finn fyrir spennunni í loftinu..!?

Olllræætt.. ég vil ekki vera að hafa þetta blogg mikið lengra því þá verður það ekki mikið lengur létt og stutt svona eins og markmiðið lýsti sér.. Svo góða nótt kæra landsbyggð... Brosandi
18. ágúst 2006 klukkan 03:38
Helga Birgisdóttir
3 athugasemdir
19júlí

Breytingar, ný síđa..? =)

jæja jæja, nú hef ég opinberlega bæst inní hóp þeirra íslendinga sem að ákveða að beila á tja til dæmis eins og ég já beila á blog.central.is kerfinu og búa sér til bloggar.is sem er svo þokkalega málið einmitt núna.. En sem eins og statusinn er núna ég hér liggjandi, þreytt upp í rúmi þá einhvernvegin finn ég ekki alveg lönguina í að skrifa LANGT blogg og ætla bara að hafa það létt og laggott í þetta skiptið..
Það er svo sem ekki mikið að frétta nema á morgun eða svona eiginlega hinn er ég búin að vera með bílpróf í akkurat tvær vikur, ég er auðvitað príðis ökumaður og vil ég hrósa sjálfri mér fyrir að vera dugleg að gefa stefnuljós ólíkt sumum sem maður kannast við.. Glottandi

Er samt núna held ég búin að koma frá mér megninu sem liggur þarna uppí heilabúinu í augnablikinu svo ég er virkilega að pæla í að fara að sofa..

Vona að þið fýlið nýju síðuna í tætlur eða svona ágætlega allavegana og endilega commentiði bannarinn minn hann er tótallý homemade.. Hlæjandi

Góða nótt og njótið fyrsta bloggsins.. úff ég er eitthvað svo stolt af þessari nýju síðu minni.. Brosandi
Tjá..!

Lag eða smellur, bloggsins eða dagsins (mikið að velta fyrir mér hvað ég á að kalla það, ennn...) : Echoes með Pink Floyd..
19. júlí 2006 klukkan 06:18
Helga Birgisdóttir
6 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins

Gagnasafn